Thursday, October 23, 2008

Japan viðtal

Google þýðing á japönsku viðtali við mig...

ICC S-AIR

Videos



Magnoose
Quantcast

Thursday, September 18, 2008

Sýningin mín opnar á morgun... Ég er búinn að eyða öllum deginum í dag að setja upp dótið mitt og náði ekki einu sinni að klára... Í fyrramálið vakna ég snemma og mæti til að stilla upp vídjódótinu sem ég ætla að sýna og klára svona smáhluti....

Hérna eru flugurnar mínar.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Fluguhljóðatækið mitt, hálfklárað...

Photobucket

Svo eru húsin í Japan svo flott og ég tók nokkrar myndir af svölunum í Oyoyo gallerýinu.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

og svo þessi út hverfinu mínu

Photobucket

ICC - S-AIR skrifstofan, þar sem stúdíóið mitt er og allt það...

Photobucket

Bad-Ass-Coffee

Photobucket

Krakkarnir læra á einhjól í barnaskóla í Japan, án gríns.... ég sá heilan bekk skiptast á því að æfa sig og kennarinn að stjórna.

Photobucket

Sunday, September 14, 2008

sjóðandi skammtur af skemmtilegheitum

Héðinn, Hanako og Tabito komu í heimsókn til mín frá Tokyo. Það er nú meira en nóg til að lífga upp á hvesdaginn í Sapporo. Við erum búinn að hafa einstakega þétt og ótrúlega skemmtilegt skemmtiprógram í skemmtilegheitum!!! Í gær komu þau í bæinn og við byrjuðum á því að fara í Ramen götuna í Sapporo og völdum vel og lengi hvaða Ramen væri best að borða. Það endaði með einstaklega gómætum Ramen, Gyoza og bjór kvöldverði.

Í dag vöknuðum við fyrir allar aldir og þar sem þau voru á hóteli í næsta bæ, Asahi-kawa, þá var ég vaknaður kl. 5...

Photobucket

...og tók lest þangað kl. korter í 7...

Photobucket

... og eftir 1 & 1/2 tíma lestarferð hittumst við í bænum og tókum strætó í einn mergjaðasta dýragarð í Japan.

Asahiyama Zoo!!!

Photobucket

Ótrúlegur dýragarður af því þarna er gert mikið úr því að maður geti komist eins nálægt dýrunum og hægt er.
Til dæmis labbar maður í gegnum neðansjávargöng þar sem mörgæsir synda yfir hausinn á manni.

Photobucket

Hér eru Hanako, Héðinn og Tabito hress í göngunum.

Photobucket

Eftir það fer maður í Sela-setrið þar sem maður sér selina synda neðansjávar...

Photobucket

...svo er búið að setja upp svona syndigöng fyrir selina svo allir geta tekið myndir og verið glaðir. Stóri selurinn sem syndir hér á myndinni var svo sniðugur að kúka!! á leiðinni í gegnum gönginn og kúkurinn flaut hægt og rólega niður eftir göngunum og allir voru spenntir að taka myndir af honum!!!

Photobucket

Í hádegismatnum sá ég gaur í frábærasta bol í heimi "A little guy with a great big heart"

Photobucket

Eftir matinn voru feðgarnir einstaklega sáttir með ísana sína.

Photobucket

Þá var komið af öpunum og í búrinu hjá klifruöpunum voru líka Capybara, sem eru frábær letidýr.

Photobucket

Nashyrningurinn var með bóner

Photobucket

Gíraffar

Photobucket





Gettu hvað þetta er:!:!?!???!?.....

Photobucket



-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
Jebb

Photobucket


Úlfasafnið þeirra er glænýtt, opnaði á þessu ári, og var fáránlega vinsælt og svaka biðröð, þannig að við kíktum bara aðeins á ytra búrið. En svarti úlfurinn horfi beint í linsuna.

Photobucket

Hressasta sela-fjölskylda í heimi!!!!

Photobucket

Eftir að dagurinn var búinn kom ég heim og sá að nýji þrífóturinn minn var brotinn í tvennt....

Photobucket

skiptir samt engu af því að þetta var besti dagur í heimi!!!!!........og ég get keypt nýjan þrífót á 2þúskall....

Wednesday, September 10, 2008

Pahty

Ég fór opnunarpartý Sapporo Short Film Festival í voða fansý hótelsal og var kynntur fyrir ýmsu kvikmyndagerðarfólki og fékk meira að segja að hitta borgarstjórann hér í bæ. Eftir það fór ég með Shibata í smá partý í OYOYO gallerýinu sem ég fæ að sýna í.

Borgarstjórinn

Photobucket Image Hosting

Þessi æðislega kisastytta er í OYOYO

Photobucket Image Hosting

Rosa töff barinn í OYOYO

Photobucket Image Hosting

Shibata söng fyrir okkur gömul japönsk popplög

Photobucket Image Hosting

Svo fórum við út á svalir og grilluðum gómsætt góðgæti.

Photobucket Image Hosting

Photobucket Image Hosting

Photobucket Image Hosting

Svo var Shibata orðinn soldið fullur og svaf í OYOYO og ég hjólaði heim....

Photobucket Image Hosting

Tuesday, September 9, 2008

Þýðing

Google þýðir japanska bloggið á ótrúlega fyndinn hátt. Það er hægt að sjá mig þarna í útvarpsþættinum og svo getið þið líka séð flyerinn fyrir sýninguna mína þarna einhvers-staðar. Það er mynd af mér þarna að spila á Shamisen og svo er nauðsynlegt að sjá hvernig nafnið mitt er borið fram á Japönsku MAGUNOSU SUYAPUHEDDOINSUSON


S-AIR blog
--------------------
--------------------